Þjóðarópera - stórt skref til framtÍðar
Árið 1957 talaði Ragnhildur Helgadóttir, alþingiskona, fyrir því á þingi að stofnaður yrði
“íslenzkur óperuflokkur”. Nú, tæpum 70 árum síðar, liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingu
á lögum um sviðslistir, þar sem lögð er til stofnun Þjóðaróperu. Þetta er í samræmi við
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Íslands frá 2021.
Með lagaramma um Þjóðaróperu verður sess óperulistarinnar tryggður til framtíðar.
Frumvarpið nýtur mikillar samstöðu þvert á listgreinar, eins og sjá má í samráðsgátt
stjórnarráðsins.
Með stofnun Þjóðaróperu verður óperulistin loksins jöfn leik og dansi í lögum um sviðslistir.
Starfsemi Þjóðaróperu verður innan Þjóðleikhússins, en kostir samlegðar þessara tveggja
stofnana eru augljósir þegar kemur að samnýtingu stoðdeilda auk þekkingar á leikhúsvinnu.
Það kostar mun minna að styrkja stoðdeildir Þjóðleikhússins heldur en að stofna nýjar
deildir, yrði Þjóðarópera sjálfstæð stofnun. Þrátt fyrir að Þjóðarópera starfi innan
Þjóðleikhússins þá hefur listrænt og fjárhagslegt sjálfstæði Þjóðaróperu verið tryggt. Aðsetur
Þjóðaróperu verður þó í Hörpu og munu rými þar, sem áður hýstu stoðdeildir, nýtast betur til
æfinga fyrir listamenn.
Lagt er til að til verði stöðugildi fyrir bæði einsöngvara og kórsöngvara til samræmis við
stöðugildi leikara við Þjóðleikhúsið, hljóðfæraleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands og
dansara við Íslenska dansflokkinn. Þetta er því mikið jafnréttismál innan sviðslista á Íslandi
en einnig forsenda þess að hægt verði að halda samfellu í starfi og tryggja það að
Þjóðarópera geti sinnt landsbyggðinni, fræðslustarfi, þróun listformsins og frumsköpun.
Samfelld dagskrá mun svo einnig styrkja menningartengda ferðamennsku á Íslandi. Þessi
stöðugildi tryggja líka að ákveðið fjármagn fari til listamannanna sjálfra. Hægt er að skipta
þessum stöðugildum upp og ráða söngvara til lengri eða skemmri tíma. Hér er verið að
styrkja stöðu listamannsins, en um leið halda módelinu sveigjanlegu.
Fjármagn til Þjóðaróperu mun aukast yfir fimm ár þangað til óperan hefur náð fullri mynd árið
2028. Það er því farið varlega og skynsamlega af stað, í takt við stefnu ríkisins um ábyrga
fjármálastjórn. Í þessu sambandi bera að nefna að stuðningur einkageirans við menningarlíf
á Íslandi er nánast enginn. Ópera er eitt dýrasta listformið vegna þess fjölda sem kemur að
hverri uppfærslu og engin dæmi eru um einkarekin óperuhús í Evrópu, sem halda úti
samfelldri starfsemi.
En þetta er bara byrjunin, því að langtímamarkmiðið er að Þjóðarópera, Þjóðleikhúsið og
Íslenski dansflokkurinn verði undir sameiginlegri stjórn en hver eining með sinn listræna
stjórnanda. Auk þess stendur til að gerður verði samstarfssamningur við Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Þar með munu stoðdeildir, sameiginleg reynsla og þekking nýtast betur svo meira
fjármagn megi renna til listarinnar sjálfrar. Þetta er í fullu samræmi við skýrslu
Ríkisendurskoðunar frá 2021 þar sem mælt er með sameiningu eða aukinni samvinnu sviðs-
og tónlistarstofnana ríkisins og bent í því samhengi á að sviðslistir á vegum hins opinbera í
Danmörku séu reknar undir einum hatti. Þetta er einnig í samræmi við þá stefnu stjórnvalda
að ríkisstofnanirnar verðir færri og sterkari rekstrareiningar.
Með þvÍ að styrkja stoðir óperulistarinnar verður til nýr heimur Í listasenunni á Íslandi.
Margvísleg störf innan sviðslista- og tónlistarheimsins munu skapa nýja möguleika, nýja
þekkingu og ný tækifæri fyrir skapandi greinar á Íslandi. Hin sterku hagkerfi listanna byggja
upp þekkingu og tækifæri og næra hvert annað. Listamenn og tæknimenn vinna þvert á
greinar. Sumt byggir á samfellu í starfi með fastráðningum eins og í leikhúsunum, en aðrar
greinar eins og kvikmyndagerð byggja á stórum alþjóðlegum styrkjum og innlendum styrkjum
og endurgreiðslu. Þjóðarópera mun byggja á samstarfi við aðrar stofnanir, sérstaklega á
landsbyggðinni, tónlistarskólana og kóra og auknum stuðningi og samstarfi við grasrótina,
sem hefur verið sérstaklega blómleg undanfarin ár. Lögð verður áhersla á þróun listformsins
og frumsköpun, t.a.m. samstarf við íslensk tónskáld um nýjar íslenskar óperur. Fræðslustarf
verður eflt, sem og samband Þjóðaróperu við Listaháskóla Íslands með það fyrir augum að
búa til óperustúdíó fyrir unga söngvara. Stærri uppfærslur Þjóðaróperu munu geta veitt yfir
100 sérmenntuðu starfsfólki vinnu og margfeldisáhrifin eru mikil. Þjóðarópera verður heldur
ekki bundin við eitt rými og getur því ferðast um landið og nýtt hefðbundin og óhefðbundin
rými til sýninga. Hér er því ekki verið að byggja neinn fílabeinsturn heldur nútímalega og
sveigjanlega stofnun sem er í sambandi við fólkið sem hún þjónar.
Íslenska þjóðin er með afbrigðum söngelsk. Fjölmargir hafa sungið eða syngja í kórum, og
stunda söngnám. Nýlega var meira að segja stofnaður kór þingmanna. Alltaf er uppselt á
óperusýningar, bæði á stóru uppfærslurnar sem og minni sýningar sjálfstæðra
grasrótarhópa. Frá árinu 2000 hafa komið fram yfir 80 ný íslensk óperuverk. Það er því ekki
hægt að segja annað en að hér búi miklir hæfileikar og þekking, en ekki síst eftirspurn eftir
meiri óperu. Það er því fagnaðarefni að loksins verði hægt að bjóða upp á samfellu í
starfsemi Þjóðaróperu, og að Íslendingar geti loks staðið jafnfætis öðrum Evrópuþjóðum
þegar kemur að samfelldri hágæða óperustarfsemi, fyrir landsmenn alla og einnig þá sem
vilja sækja landið heim.
Um aldamótin 1900 söng fyrsti íslenski óperusöngvarinn, Ari Johnson, víðsvegar um Evrópu.
Fyrsta óperusýningin á Íslandi, Systirin frá Prag eftir Wenzel Muller, var sýnd árið 1937.
Fyrsta óperusýningin í Þjóðleikhúsinu var sýning Kongunglegu óperunnar í Stokkhólmi á
Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart árið 1950, og ári síðar réðst Þjóðleikhúsið í sína fyrstu
óperuuppfærslu, Rigoletto eftir Verdi. Árið 1979 var óperan I Pagliacci eftir Leoncavallo sýnd
í Háskólabíói af hópi undir forystu Garðars Cortes. Þessi hópur stofnaði svo Íslensku
óperuna árið 1980 og sýndi sína fyrstu sýningu af Sígaunabaróninum í Gamla bíói árið 1982.
Nú er komið að næsta stóra skrefi til framtíðar, stofnun Þjóðaróperu.
Andri Björn Róbertsson
Höfundur er óperusöngvari og stjórnarmaður í Fagfélagi klassískra söngvara á Íslandi