Tekjuskattur

Umsögn í þingmáli 918 á 154. þingi


Þingmál lagt fram: 27.03.2024 Tegund þingmáls: Lagafrumvarp Fjöldi umsagna við þingmál: 10 Fjöldi umsagnabeiðna við þingmál: 12 Ferill þingmálsins á althingi.is Sendandi: Öryrkjabandalag Íslands Viðtakandi: Efnahags- og viðskiptanefnd Dagsetning: 23.04.2024 Gerð: Umsögn
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis Smiðja við Tjarnargötu 9 101 Reykjavík Reykjavík, 23. apríl 2024 Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (barnabætur, sérstakur vaxtastuðningur), mál 918. Tilefni frumvarpsins er m.a. styðja við lífskjör launafólks með sérstakri áherslu á húsnæðisuppbyggingu, húsnæðisstuðning og málefni barnafjölskyldna. ÖBÍ styður og fagnar öllu því sem lagt er fram til að þess að styðja við lífskjör fólks. ÖBÍ vill hins vegar koma eftirfarandi athugasemdum og tillögum á framfæri. Barnabætur Með því að hækka barnabætur og draga úr tekjuskerðingum munu fleiri foreldrar njóta stuðnings í formi barnabóta. Gert er ráð fyrir því með breyttu kerfi hækki barnabætur og skerðingahlutföll á bilinu 6% - 12%. Eins og tafla 1 sýnir, þá hækka barnabætur um 6% bæði fyrir hvert barn og barn einstæðs foreldris. Skerðingahlutfall barnabóta er hækkuð um 12%, bæði fyrir einstaklinga og hjón. Að mati ÖBÍ þarf að veita einstæðu foreldri aukinn stuðning hvað þetta atriði varðar og hækka skerðingahlutfall þess aukalega um 50%, m.v. skerðingu tekna hjá einstaklingi. Skerðingahlutfall barnabóta hjá einstæðu foreldri yrði því 8.250.000 kr. Barnabætur fyrir breyt. Barnabætur eftir breyt. Hækkun Hvert barn 310.000 328.000 6% Einstætt foreldri 460.000 489.000 6% Barnabætur skerðast við tekjur hjóna 9.785.000 11.000.000 12% Barnabætur skerðast við tekjur einstaklings 4.893.000 5.500.000 12% Sérstakar viðbætur barnabóta við barn 7 ára og yngri 130.000 130.000 0% ÖBÍ gerir athugasemd við þann kafla frumvarpsins, að tekjutengdar barnabætur með hverju barni yngra en sjö ára hækkar ekki. Nær væri að þessar tekjutengdu barnabætur hækkuðu a.m.k. um 6% eins og aðrar barnabætur. Athyglisvert er þó að sjá að skerðingahlutfall tekna varðandi tekjutengdar barnabætur hækka, en ekki sjálf upphæð barnabótanna. Sérstakur vaxtastuðningur Til að mæta auknum vaxtakostnaði heimilanna síðustu misseri er lagt til að á árinu 2024 verði ákvarðaður sérstakur vaxtastuðningur til heimila með íbúðalán. Um tímabundna einskiptis Sigtúni 42, 105 Reykjavík • 530 6700 • obi.is aðgerð til eins árs er að ræða sem áætlað er að feli Í sér ákvörðun sérstaks vaxtastuðnings til rÍflega 50 þúsund einstaklinga við álagningu opinberra gjalda á árinu 2024. Hér er um sérstakan vaxtastuðning að ræða, sem kemur til viðbótar almennum vaxtastuðningi, sem er að mati ÖBÍ skref í rétta átt, til að styðja fólk við hærri vaxtakostnaði undanfarið ár. Skerðingar á sérstökum vaxtastuðningi Í frumvarpinu kemur fram að sérstakur vaxtastuðningur skerðist hlutfallslega fari eignir, að frádregnum skuldum fram úr 18.000.000 kr. hjá einstaklingi eða einstæðu foreldri og 28.000.000 kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki. Í 72. gr. núgildandi laga um tekjuskatt eru framtalskyldar eignir skilgreindar sem allar fasteignir, lausafé og hvers konar önnur verðmæt eignarréttindi. Í dag getur fatlað fólk sótt um styrk vegna kaupa á sérútbúnum bifreiðum og/eða vegna breytinga á bifreiðum sem nauðsynlegar eru viðkomandi til að stunda vinnu, nám, endurhæfingu eða sækja læknisþjónustu, sbr. reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartæki. Stærð bifreiðar og umfang breytinga eru persónubundnar og fer eftir aðstæðum hvers og eins. Í þeim tilfellum sem einstaklingur þarf bifreið sem rúmar stórt hjálpartæki á borð við hjólastólalyftu og rafmagnshjólastól þá er ódýrusta útgáfa slíkrar bifreiðar, fyrir nauðsynlega breytingu ca. 10 milljónir. Hafi einstaklingur hug á að taka þátt Í orkuskiptunum líkt og margir aðrir landsmenn þá kostar rafmagns útgáfa sambærilegrar bifreiðar tæpar 14 milljónir króna. ÖBÍ hefur áhyggjur af því að dýrar sérútbúnar bifreiðar fatlaðs fólk geti leitt til skerðinga á vaxtabótum hjá þessum hópi. Í dag eru dæmj um að sl ík bilakaup skerði bæði sérstakan húsnæðisstuðning svertarfélaga og húsnæðisbætur frá Húsnæðis^og mannvirkjastofnun. ÖBÍ leggur til að sérútbúnar bifreiðar fatlaðs fólks bætist við sem 6. tölul. upptalningu á eignum í 74. gr. laga u sm tekjuskatt em teljast ekki til framtalsskyldra eigna. Ekkert um okkur án okkar! Með vinsemd og virðingu, Gunnar Alexander Ólafsson hagfræðingur ÖBÍ 1 6 Kjarfan Þor lngasonp verkefnastjóri ÖBÍ Andrea Valgeirsdóttir lögfræðingur ÖBÍ Sigtúni 42, 105 Reykjavík • 530 6700 • obi.is