Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
Tjarnargata 9
101 Reykjavík
29.04.2024
Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997
(fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða), þskj. 1317, mál 880.
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) fagna fyrirhuguðum breytingum á lögum nr. 129/1997 sem heimilar
lífeyrissjóðum að eiga stærri hlut en 20% í félögum sem leigir íbúðarhúsnæði til einstaklinga
í langtímaleigu. ÖBÍ sendu fjármála- og efnahagsráðuneytinu umsögn um frumvarpsdrögin
þann 14. mars síðastliðinn. Í greinagerð frumvarpsins er hluti ábendinga ÖBÍ tilgreindar en
ekki teknar til skoðunar við efnislegar breytingar á frumvarpsdrögunum. Íslenskur
leigumarkaður er mjög frábrugðinn leigumörkuðum flestra OECD ríkja í ljósi þess að
meirihluti leigjenda hér á landi leigja af einstaklingum á almennum markaði en ekki af hinu
opinbera eða leigufélögum. Sú staðreynd vegur þungt þegar horft er til fjölda
skammtímaleigusamninga, skorts á fyrirsjáanleika um þróun leiguverðs og óstöðugleika á
leigumarkaði. Að mati ÖBÍ er frumvarpið skref í rétta átt en jafnframt sé svigrúm til að skerpa
á ákveðnum áherslum. ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.
Samfélagsleg ábyrgð
Aðgengi að öruggu og heilnæmu húsnæði er ein af grundvallarforsendum þess að skapa
velsældarsamfélag á Íslandi. Aðgengi að húsnæði eitt og sér dugar þó skammt ef byrði
húsnæðiskostnaðar er of þung. Þetta á sérstaklega við um þá hópa samfélagsins sem
standa hvað höllustum fæti, t.a.m. fólk með örorkulífeyrisgreiðslur. Samkvæmt niðurstöðu
rannsóknar Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi sem
kom út í desember 2023, leigja 20,5% fatlaðs fólks íbúð á almennum leigumarkaði. Staða
fatlaðs fólks á almennum leigumarkaði er oft erfið en 65,8% upplifa þunga byrði
húsnæðiskostnaðar.
Í rannsókn Vörðu kemur einnig fram að 53,7% fatlaðs fólks býr í eigin húsnæði. Þær tölur
stemma vel við rannsókn Félagsvísindastofnunnar Háskóla Íslands um húsnæðismál fatlaðs
fólks frá því í nóvember 2022, en þar kemur fram að 58% fatlaðs fólks býr í eigin húsnæði
sem er 20% lægra en er almennt meðal þýði þjóðar. Einnig er vert að nefna að 70% fatlaðs
fólks sem býr í eigin húsnæði var ekki með örorkumat þegar þau eignuðust húsnæði sitt. Því
er ljóst að staða örorkulífeyristaka er talsvert verri og ójöfn miðað við aðra þjóðfélagshópa
þegar horft er til þeirrar hörðu samkeppni sem ríkir á húsnæðismarkaði. Íbúðarhúsnæði er
ekki eins og hver önnur neysluvara enda hluti af mannréttindum fólks að hafa þak yfir
höfuðið.
Verði frumvarpið að lögum munu lífeyrissjóðir landsins fá aukið svigrúm til að eignast stærra
eignarhlutfall í almennum leigufélögum. Aukinn eignarhluti leiðir af sér aukin áhrif innan
stjórnar leigufélags með tilheyrandi ábyrgð gagnvart sjóðsfélögum og samfélaginu. ÖBÍ
leggur til að ráðherra setji reglugerð um samfélagslega ábyrgð lífeyrissjóða með virkan
eignarhluta í félögum sem leigir íbúðarhúsnæði til einstaklinga í langtímaleigu. Með
reglugerð bæri fulltrúum lífeyrissjóða í stjórnum almennra leigufélaga að huga að áhrifum
ákvarðanatekna gagnvart leigjendum og samfélaginu í heild sinni, sérstaklega varðandi
breytingum á leiguverðskrá. Slík viðmiði eru í ágætu samræmi við 36. gr. gildandi laga nr.
129/1997 en þar er kveðið á um að lífeyrissjóður skal setja sér siðferðisleg viðmið í
fjárfestingum. Að auki leggur ÖBÍ áherslu á að leigufélög á vegum lífeyrissjóða endurspegli
samfélagslega fjölbreytni meðal leigjenda hjá sér.
Sigtún 42, 105 Reykjavík • 530 6700 • obi.is
Aðgengilegt húsnæði og gott fordæmi
Meirihluti Íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegt fötluðu fólki sem hefur þvÍ fá úrræði.
Þjóðin er að eldast, þ.m.t. sjóðsfélagar lífeyrissjóðanna og því verður að gæta þess að allt
nýtt íbúðarhúsnæði og húsnæði sem er gert upp sé fyllilega aðgengilegt svo að fólk þurfi
ekki að flytja í sértæk úrræði þegar aldurinn færist yfir og hreyfigetan minnkar. Óaðgengileg
hönnun íbúða og nærumhverfis þrengir verulega að tækifærum fatlaðs fólks um að komast í
örugga búsetu á eigin forsendum. ÖBÍ áréttar að samningur Sameinuðu þjóðanna um
réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er fullgildur á Íslandi og að unnið er að lögfestingu samningsins
inn í íslensk lög, sbr. þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin
2024-2027, þskj. 1297 - 584. mál .Hugtakið aðgengi í sínum víðasta er ein af grunnstoðum
SRFF og mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi fatlaðs fólks að samfélaginu, þ.m.t.
mannvirkjum.
Hér er sóknarfæri fyrir lífeyrissjóðina til að sýna gott fordæmi og hafa áhrif á bætt aðgengis
allra að almennum leiguíbúðum. ÖBÍ leggur til að í reglugerð um samfélagslega ábyrgð
lífeyrissjóða með virkan eignarhluta í félögum sem leigir íbúðarhúsnæði til einstaklinga í
langtímaleigu verð ákvæði um algilda hönnun og aðgengi. Með reglugerðinni bæri fulltrúum
lífeyrissjóða í stjórnum almennra leigufélaga að huga að aðgengi nýrra eigna sem leigufélag
hyggist kaupa. Reglugerðarákvæðið myndi einnig ná yfir eignir sem leigufélag hyggist
endurinnrétta og lagfæra en þá er mikilvægt horft verði til algildrar hönnunar og að aðgengi
sé tryggt.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
OJO/j
verkefnastjóri ÖBÍ
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ
Sigtún 42, 105 Reykjavík • 530 6700 • obi.is
https://www.althingi.is/altext/154/s/1297.html
https://www.althingi.is/altext/154/s/1297.html