Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
Reykjavík, 3. desember 2019
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu
á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum
(aldurstengd örorkuuppbót), þingskjal 330 - 294. mál.
ÖBÍ lýsir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og felst í sér að að réttur til
aldurstengdrar örorkuuppbótar haldist óbreyttur þegar réttur til örorkulífeyris fellur niður
og taka ellilífeyris hefst. Samkvæmt núgildandi lögum missa örorkulífeyrisþegar
aldurstengda örorkuuppbótina við 67 ára aldur. Breytingin myndi bæta stöðu fatlað
fólks og langveikra sem vegna veikinda, slysa eða fötlunar ná ekki að safna sér
réttindum í lífeyrissjóðum og þegar réttindin þeirra eru mjög takmörkuð. Á slíkt
sérstaklega við um einstaklinga sem fá örorkumat ungir að árum. Þessir einstaklingar
fá almennt mjög lá eða jafnvel engin eftirlaun frá lífeyrissjóðum.
Ljóst er að sá hópur ellilífeyrisþega sem fyrir 67 ára aldur þurfti að framfleyta sér á
örorkulífeyrir og/eða var um lengri tíma utan vinnumarkaðar er almennt með mun lægri
tekjur og í mun erfiðari fjárhagsstöðu en aðrir ellilífeyrisþegar. Þetta er sá hópur
ellilífeyrisþega sem stendur verst.
Örorkulífeyrisþegar hafa að auki ekki val um að fresta töku ellilífeyris til 72 ára aldurs,
eins og aðrir, og hækka þar með greiðslur sínar á mánuði um 0,5%1, þar sem greiðslum
til örorkulífeyrisþega er breytt á umsóknar úr örorkulífeyri í ellilífeyri án við 67 ára aldur.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður ÖBÍ
1 Hægt er að hækka ellilífeyrir og heimilisuppbót um að hámarki 30% með því að fresta töku ellilífeyris.
1
ÖBÍ | S igtúni 1̂2 | 105 Reykjavik | 530 6700 | obi.is | obi@ obi.is
mailto:obi@obi.is