Virðisaukaskattur

Umsögn í þingmáli 26 á 150. þingi


Þingmál lagt fram: 19.09.2019 Tegund þingmáls: Lagafrumvarp Fjöldi umsagna við þingmál: 12 Fjöldi umsagnabeiðna við þingmál: 106 Ferill þingmálsins á althingi.is Sendandi: Hrunamannahreppur Viðtakandi: Umhverfis- og samgöngu­nefnd Dagsetning: 11.10.2019 Gerð: Umsögn
Sæl Sveitarstjórn Hrunamannahrepps tók fyrir á fundi sínum í gær eftirfarandi umsagnarmál. 1. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis: umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Oddviti kynnti umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Sveitarstjórn fagnar því að frumvarp um endurgreiðslu virðisaukaskatts af fráveituframkvæmdum sveitarfélaga hafi verið lagt fram og hvetur til þess að það verði samþykkt. Um brýnt hagsmunamál allra sveitarfélaga er að ræða og óeðlilegt að ríkið hafi beinar tekjur af aðgerðum sveitarfélaga sem miða að vernd umhverfis og náttúru. Mörg sveitarfélög þurfa að ráðast í verulega kostnaðarsamar framkvæmdir vegna fráveitumála. Ríkið getur stuðlað að uppbyggingu hreinsimannvirkja og úrbótum í fráveitumálum þar sem þörf er á með því að taka upp að nýju endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna fráveituframkvæmda. Mestar framfarir í fráveitumálum urðu á þeim tíma sem slíkt endurgreiðslukerfi var í gildi. Kveðja JGV Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri