Nefndasvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags íslands (ÖBÍ) vegna frumvarps til laga um
félög til almannaheilla. 150. Löggjafarþing 2019-2020. Þingskjal 182 - 181. Mál.
Stjórnarfrumvarp.
Almennt
ÖBÍ er heildarsamtök fatlaðs fólks á íslandi, regnhlifarsamtök yfir félög fatlaðs fólks,
aðstandenda og langveikra á íslandi. Undir regnhlíf bandalagsins eru 43 félög, öll
mismunandi að stærð og styrk. Heildarfélagafjöldi félagsmanna aðildarfélaga ÖBÍ er
rúmlega 40.000 manns.
ÖBÍ tekur undir það sjónarmið að skilgreindur lagalegur rammi utan um félög til
almannaheilla getur orðið til þess að byggja upp jákvætt orðspor og auðvelda fyrir starfi
þeirra. Lögunum er ætlað að tryggja að félög geti fengið ákveðin gæðastimpil fyrir starf
sitt. Þó verður sérstaklega að hafa í huga að gæðastimpill félaga byggir ávallt á starfi
þeirra og orðspori.
Gæta verður þess að lögin og framkvæmd þeirra fari ekki gegn
félagafrelsisákvæði stjórnarskrárinnar
Á íslandi er félagafrelsi eitt af grundvallaratriðum réttarskipaninnar. Félagafrelsi er eitt
af grundvallaratriðum allra réttarríkja. Félagafrelsi er verndað í 74. gr.
stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 um
mannréttindasáttmála Evrópu. Kjarni félagafrelsis er að fólk geti myndað félög í
sérhverjum löglegum tilgangi. í Ijósi þessa telur ÖBÍ ákaflega mikilvægt að það sé
algerlega tryggt að frumvarpið og framkvæmd laganna, verði frumvarpið að lögum,
verði ekki til þess að þrengja að frjálsum félögum á landinu og að ramminn sem settur
verður utan um almannaheillafélög verði ekki of íþyngjandi. Hér má sérstaklega líta til
þeirrar stöðu að félög einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma verða eðli sínu samkvæmt
aldrei fjölmenn, en tilgangur þeirra ákaflega mikilvægur, hætta er á að lög sem þessi
geti reynst slíkum félögum erfið ef kröfurtil félaganna verða of íþyngjandi. Lögin mega
alls ekki verða til þess að fólk geti ekki, í framkvæmd, stofnað félög til almannaheilla
án þess að þurfa að verða við óraunhæfum kröfum.
Reykjavík 5. nóvember 2019
ÖBÍ | S ig tún i42 | 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is | obi(5)obi.is
Umræða um frumvörp um efnið
Öll þau frumvörp sem hafa komið fram til laga um félög til almannaheilla hafa sætt
gagnrýni og verið umdeild. Á þessu frumvarpi er að sjá jákvæðar breytingar sem gerðar
hafa verið og lúta þær að því að hafa rammann ekki of íþyngjandi.
Þau efnisatriði sem helst hafa komið upp í umræðu varðandi framkomin frumvörp eru
kröfur um að öll félög þurfi að greiða fyrir sérstaka endurskoðun á reikningum sínum.
Mikilvægt er að hafa í huga að kröfur sem þessar geta komið litlum félögum ákaflega
illa og er jákvætt að sjá að ekki er gerð krafa um endurskoðun reikninga af löggildum
endurskoðanda eða endurskoðendafyrirtæki. Jafnframt hefur komið fram gagnrýni á
hvernig fara eigi með sölu fasteigna hjá félögum. í þessu samhengi er mikilvægt að
félögum sjálfum verði treyst fyrir að haga sínum fjármálum, þar á meðal sölu fasteigna
með þeim hætti sem best hentar hverju félagi.
Að lokum
Frumvarpið byggir á jákvæðri hugmynd um að tryggja faglegan grunn félaga um
almannaheill. Efnahags- og viðskiptanefnd er þó hvött sérstaklega til þess að huga
mjög vel að efni frumvarpins til að tryggja að frumvarpið nái tilgangi sínum.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður ÖBÍ
ÖBÍ | Sigtúni 42 | 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is | obi@obi.is
mailto:obi@obi.is