Alþingi
Mefndasvið
Austurstræti 8-12
150 Reykjavík
Reykjavík, 6.6.2019
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags íslands (ÖBÍ) um frumvarp tðD laga um
breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (framfærsluuppbót og
meðferð atvinnutekna) þingskjal 1655 - 954 mál.
Frestur til að skila inn umsögn um frumvarp félagsmálaráðherra sem hér er til
umsagnar er allt of skammur, eða einungis tveir dagar. Mun lengri tíma hefði þurft til
að fara í gegnum öll ákvæði frumvarpsins þannig að vel sé og vandað.
Meginefni frumvarpsins er tvíþætt. Annars vegar breytingar er lúta að því að lækka
skerðingarhlutfall framfærsluuppbótar úr 100% í 65% ásamt því að lækka
skerðingarhlutfall fjárhæðar aldurstengdrar örorkuuppbótar úr 100% í 50% við
útreikning framfærsluuppbótar. Hins vegar sú breyting að heimila að telja einungis
atvinnutekjur sama tímabils til tekna við útreikning lífeyris. Auk þessa eru í frumvarpinu
ákvæði alls ótengd markmiðum þess, en ákvæði þessi eru sett inn í þeim tilgangi að
lögfesta reglugerðarákvæði og/eða auka á tekjuskerðingar. ÖBÍ gerir alvarlegar
athugasemdir við ákvæðin í c) og d) lið 1. gr. frumvarpsins og er lögð rík áhersla á að
þessir tveir liðir verði teknir úr frumvarpinu, sjá nánar rökstuðning undir 1 .gr.
Rétt er að geta þess að breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu stuðla ekki að því
að einfalda kerfið, heldur þvert á móti auka þær flækjustigið og gera kerfið enn flóknara
og óskiljanlegra. Það verður því enn erfiðara fyrir fólk að átta sig á útkomunni óháð
aðstæðum eða tekjum fólks.
ÖBÍ hefur stutt og lagt ríka áherslu á að frumvarp byggt á þingskjali 54 - 54. mál um
afnám „krónu á móti krónu" skerðingar verði að lögum. Breytingin/leiðin sem lögð er
fram í því frumvarpi er ákaflega einföld og auðveld í framkvæmd, einfaldar
framfærslukerfið, tryggir að innbyrðis tekjutengingar verða teknar út og nær til allra
örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.
í umsögn ÖBÍ um frumvarpið (54. mál) var áréttað að afnám „krónu á móti krónu“
skerðingar væri hægt að framkvæma strax án þess að taka upp starfsgetumat eða
bíða eftir að enn ein nefndin um endurskoðun almannatryggingakerfisins Ijúki störfum.
Frumvarpinu sem hér er til umsagnar virðist ætlað að vera fyrsta skref í átt að
breytingum að framfærslukerfi almannatrygginga fyrir örorku- og
endurhæfingarlífeyrisþega. Þetta frumvarp felur eingöngu í sér lækkun á
skerðingarhlutfalli, þó það sé skref í rétta átt. Enn er til staðar greiðsluflokkur sem
skerðist frá fyrstu krónu. Ekki er Ijóst hver næstu skref eru, né hvert er stefnt með
framfærslukerfið eða hver útkoman verður.
1
ÖBÍ | Sigtúni ^2 | 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is | obi@obi.is
mailto:obi@obi.is
í ræðu félags- og barnamálaráðherra á Alþingi við fyrstu umræðu frumvarpsins kom
fram að breytingar sem felast í frumvarpinu séu hugsaðar sem nokkurs konar brú yfir
í nýtt greiðslukerfi vegna skertrar starfsgetu. Gert sé ráð fyrir að frumvarp sem byggir
á grunni starfshóps um breytt framfærslukerfi verði lagt fram á næsta löggjafarþingi
þar sem stigin verði stærri skref til breytinga á núverandi kerfi. Eins og fram kemur í
bókun ÖBÍ við skýrslu samráðshóps um breytt framfærslukerfi almannatrygginga er
stjórn ÖBÍ þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera breytingar á almannatrygginga-
kerfinu sem miði að því að einfalda það og aðlaga að þörfum þeirra sem á það treysta.
Það sé hinsvegar ótækt að ráðist verði í þær breytingar með starfsgetumat til
grundvallar. Má nefna að erlend systursamtök ÖBÍ sem rætt hefur verið við vegna
starfsgetumats hafa varað við því og nefna gjarnan í því sambandi að þeim hafi reynst
mjög erfitt að vinda ofan af ýmsum annmörkum starfsgetumatsins svo sem
harkalegum vinnuskilyrðingum. Þá hafi sú ætlun erlendra stjórnvalda, að
vinnumarkaðurinn, bæði sá opinberi og hinn almenni, mundi skapa eða auka framboð
fjölbreyttra hlutastarfa fyrir fólk með skerta starfsgetu, ekki gengið eftir. Það eitt og sér
er grundvallarbrestur í forsendum kerfis sem fjallar um störf, starfsgetu og þátttöku á
vinnumarkaði.
Það eru vonbrigði að það nána samráð við hagsmunasamtök fatlaðs fólks um allt sem
hefur áhrif á líf þess sbr. 3. mgr. 4 gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks, og á við um alla ákvarðanatökuferla frá upphafi til enda, meðal annars
um gerð frumvarpa, var augljóslega ekki virt í þessu máli. Ekkert samráð var haft um
það hvernig þessum 2,5 milljörðum skyldi varið og ekki var tekið tillit til óska ÖBÍ
varðandi það að skoða hvort betur kæmi út fyrir örorkulífeyrisþega að þessi upphæð
yrði sett inn í grunnlífeyrinn sem myndi með því móti hafa áhrif til lækkunar á sérstakri
framfærsluuppbót þeirra sem hana hefðu. Hagsmunasamtökum fatlaðs fólks var sagt
að þau myndu geta ráðið því hvernig þessum peningum yrði ráðstafað. Þegar á
hólminn var komið var samráðið í skötulíki eða einungis stutt kynning á einum fundi.
Þessum orðum fylgdu því ekki efndir.
Þá veldur það mikilli furðu að sjá laumað inn í frumvarpið ákvæðum sem varða
búsetuskerðingar og slysabætur. Ekkert samráð var haft við ÖBÍ um ákvæði í c) og d)
lið 1. gr. frumvarpsins. Þessir liðir voru aldrei kynntir né orðaðir og því algjörlega
óásættanlegt að þeir hafi verið settir inn í þetta frumvarp, sér í lagi þegar engin leið er
að fá nánari útskýringar á þeim og virðast þeir einungis settir í frumvarpið með það að
markmiði að skerða örorkulífeyrisgreiðslur enn frekar.
Kjör örorkulífeyrisþega - þróun síðustu ára og samanbyrður.
Kjör örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa dregist mjög aftur úr kjörum megin-
þorra landsmanna. Atvinnuleysisbætur, sem almennt eru hugsaðar sem tímabundin
framfærsla, eru orðnar talsvert hærri en örorkuiífeyrir sem oft á tíðum er framfærsla og
jafnvel eina framfærsla fatlaðs og langveiks fólks til lengri tíma, jafnvel áratugum
saman.
2
ÖBÍ | Sigtúni 42 l 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is 1 obi@iobi.is
mailto:obi@iobi.is
TafDa 1. DHlsekkaíw t il öiroirlkyDBffeyirBsþega ffirá 2012 ffnD 2018 - saimiaimlbuirðyir v ið aðira
hépa:
SamanlögiS
hækkun á
mánuði 2012-
201S
UpphæS á
mánuði 1.5.2019
Forsæ tisráðherra* 869 .805 2.021 .825
R áðherrar* 785 .129 1.826.273
Þingm enn/þingfararkaup 547.635 1 .101 .194
Ó skertur lífeyrir
alm annatrygginga
63.648 247.183
Lágtekjutrygging í dagvinnu 96.000 317 .000
A tvinnuleysisbæ tur* 97 .391 279 .720
*að meðtöldu þingfararkaupi.
Kjaragliðnun frá árinu 2008,1 tæp 33%, hefur enn ekki verið leiðrétt. Bilið á milli
örorkulífeyrisþega og annarra hópa í samfélaginu mun halda áfram að aukast, ef
lífeyrir almannatrygginga á einungis að hækka árlega um örfáar prósentur, en lágar
prósentuhækkanir á lágar upphæðir gefa af sér lágar krónutöluhækkanir.
Hverjy Ibreyffnr ffiryinnivarpnð um sfföðu örorku- og enidurlhsefiinigarDnffeyrnsþega?
Til að bæta kjör lífeyrisþega þarf að hækka lífeyri almannatrygginga verulega og draga
verulega úr tekjuskerðingum. í frumvarpinu er tekið lítið skref í rétta átt til að draga úr
tekjuskerðingum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega með því að lækka skerðingar-
hlutfall framfærsluuppbótar úr 100% í 65%.
Tekjuskerðing vegna annarra tekna á framfærsluuppbótina yrði enn gríðarlega mikil
(65%) auk þess að hún er reiknuð af tekjum fyrir skatt. A f þeirri fjárhæð sem skerðir
framfærsluuppbótina á eftir að greiða 36,94% tekjuskatt eða 22% fjármagnstekjuskatt.
Skerðingin er því í raun hærri en 65%. Auk þess yrði tekjuskerðingin áfram frá fyrstu
krónu sem örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fá annars staðar frá, sem gerir það
að verkum að fólk með lágar tekjur kemst ekki hjá því að verða fyrir tekjuskerðingum
eða því að fá bakreikning eftir uppgjör.
í frumvarpinu er ennfremur lagt til að 50% fjárhæðar aldurstengdrar örorkuuppbótar
skerði framfærsluuppbótina í stað 100%, eins og reyndin er með aðra bótaflokka
almannatrygginga. Þessar tvær breytingar spila saman og því eru sett fram tvö dæmi
sem sýna mismunandi útkomu eftir aldri við fyrsta mat hjá TR.
1 Framfærsluuppbótin kom fyrst inn með reglugerð nr. 878/2008 með gildistöku frá 1.9.2008.
3
ÖBÍ | Sigtúni 42 | 105 Reykjavík | 530 6700 j obi.is | obi(a)□ bi.is
Tafla 2.
Dæmi um skatta og skerðingar vegna 60.000 kr. lífeyrissjóðstekna
Fyrsta mat 30 ára
Heildartekjur Skerðing* Staðgreiðsla Til
ráðstöfunar
Skerðing
og skattur
Núverandi
fyrirkomulag
273.040 21.641 44.414 228.626 66.055
Breytingar
skv. frumv.
283.290 11.391 48.200 235.090 59.591
*Skerðing framf
Tafla 3.
Dæmi um ska
Fyrsta mat 50
ærsluuppbótar, ekki annarra bótaflokka.
itta og skerðingar vegna 60.000 kr. lífeyrissjóðstekna
ára
Heildartekjur Skerðing* Staðgreiðsla Til
ráðstöfunar
Skerðing
og skattur
Núverandi
fyrirkomulag
247.476 47.205 34.971 212.505 82.176
Breytingar
skv. frumv.
270.507 24.173 43.478 227.029 67.651
*Skerðing framfærsluuppbótar, ekki annarra bótaflokka.
Samspilið á milli aldurstengdrar örorkuuppbótar og framfærsluuppbótar verður enn til
staðar og í enn flóknari mynd ef 50% af fjárhæð aldurstengdrar örorkuupbótar telst til
tekna. ÖBÍ hefur lagt ríka áherslu á að gera þá breytingu að aldurstengd örorkuuppbót
leggist ofan á framfærsluviðmiðið, svo að hún nái upprunalegum tilgangi sínum og
verði að raunverulegri viðbót. Sú breyting myndi einfalda kerfið og koma í veg fyrir
þetta samspil.
Dæmi: Örorkulífeyrisþegi sem fær fyrsta mat 50 ára gamall myndi hækka um 2.324 kr.
ef hann hefði engar aðrar tekjur. Hins vegar myndi hann hækka um 19.824 kr. ef hann
væri með 50 þúsund kr. frá lífeyrissjóði. Því er Ijóst að hækkunin beinist ekki endilega
til þess hóps örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem hefur lægstu tekjurnar.
Misræmi miili örorku- og ellilífeyrisþega.
Með lögum sem tóku gildi 1.1.2017 var „króna á móti krónu“ skerðing afnumin á
greiðslum til ellilífeyrisþega vegna allra skattskyldra tekna. Þetta misræmi mun
viðgangast áfram, þó að áhrifin verði eitthvað minni.
í töflu 4 eru sýnd áhrif þess á heildartekjur örorkulífeyrisþega að flytjast yfir á
ellilífeyrisgreiðslur við 67 ára aldur. Þessi einstaklingur fær 40 þúsund kr. greiðslur úr
lífeyrissjóði.
Tafla 4.
Tekjur á mánuði Tekjur á mánuði
Ororkulífeyrir frá TR* 207.183 Ellilífeyrirfrá TR 241.355
Lífeyrissjóðstekjur 40.000 Lífeyrissjóðstekjur 40.000
Samtals fyrir skatt 247.183 Samtals fyrir skatt 281.355
*fyrsta mat við 40 ára aldur.
4
ÖBÍ | Sigtúni 42 | 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is | obi@obi.is
mailto:obi@obi.is
Það er með ólíkindum að fólk geti verið með tugi þúsunda lægri heildartekjur einungis
sökum þess að það er undir 67 ára aldri, sbr. dæmið í töflu 4.
Ljóst er að löngu er orðið tímabært að afnema þessar 100% skerðingar, sem voru
afnumdar á greiðslum til ellilífeyrisþega í byrjun árs 2017.
í fmmvarpinu er lagt til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2019. Ef menn viija vera
sanngjarnir og fara eftir jafnræðisreglu, þá ætti afnám „krónu á móti krónu'1 skerðingar
að taka gildi frá 1. janúar 2017, þ.e. með því að sameina framfærsluuppbótina og
grunnlífeyrinn/tekjutrygginguna.
Unn) 1. gr.
a) og b) liður. Eogar athygasemdDir.
c) llD<B)yr
í frumvarpinu kemur fram að „Ijárhæð uppbótarinnar skal reiknast í samræmi við
réttindi til lífeyris, sbr. 1. og 4. mgr. 18. gr. laga um almannatryggingar."
Verði frumvarpið að lögum er verið að lögfesta svokallaða búsetuskerðingu á sérstakri
framfærsluuppbót. Áhrifin verða þá þau að einstaklingar falla niður fyrir lögbundið
framfærslulágmark eða viðmið.
í greinargerðinni kemur fram að verið er að lögfesta núverandi framkvæmd
Tryggingastofnunar. Það hefur verið mat ÖBÍ frá upphafi að slík framkvæmd sé
ólögmæt og er með þessari lagabreytingu í raun ekki verið að gera annað en að
lögfesta þá framkvæmd TR. Varað er sérstaklega við því að samþykkja þessa grein
því þingheimur er þar með að skerða réttindi fólks og jafnframt að festa stóran hóp
fólks í hrikalegri fátækt sem brýtur gegn eðlislægri mannlegri reisn einstaklinga.
Þetta ákvæði er einnig hægt að gagnrýna á grundvelli annarra þátta:
í fyrsta lagi hafa verið settir inn í frumvarpið þættir sem ekki hefur verið sátt um. í Ijósi
þess sem sagt var hér að ofan er um risastórt hagsmunamál fyrir fjölda fólks að ræða
og verður því að teljast ótrúlegt að þessu hafi verið bætt í frumvarpið. Áhrifin af þessu
geta haft skelfilegar afleiðingar fyrir fjölda fólks.
í öðru lagi mun samþykkt frumvarpsins ekki þjóna markmiði velferðarríkis. Upphaflegur
tilgangur framfærsluviðmiðs var göfugur, það er að tryggja lágmark fyrir aila
einstaklinga. Tilgangurinn er að auka heildartekjurnar upp að tilteknu lágmarki þannig
að enginn lífeyrisþegi hafi lægri heildartekjur sér til framfærslu en sem því nemur.
Augljóst er að það markmið næst ekki ef greiðslurnar eru búsetuskertar, slíkt leiðir til
þess að sumir ná ekki lágmarkstekjum. í þessu samhengi þarf að minnast þess að
bótaflokkurinn var settur á, á sínum tíma, vegna þess að „það var mat manna að
bótaflokkar almannatryggingakerfisins nægðu ekki til framfærslu1'. Verði frumvarpið að
lögum er þingheimur að lögfesta þá reglu að lágmarksframfærsla sé ekki fyrir alla
einstaklinga. Það megi láta hóp fólks sitja eftir. Á tímum þar sem stjórnmálamenn vísa
5
ÖBÍ | S igtúni42 | 105 Reykjavík | 530 6700 J obi.is | obi(a)obi.is
stöðugt í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að skilja engan eftir er hér á sama
tíma gerð tilraun til að skilja hóp fólks eftir í gríðarlegri fátækt.
í þriðja lagi er eins og frumvarpið byggi á misskilningi sem felur í sér að ekki er gerður
greinarmunur á félagslegri aðstoð og almannatryggingum. Grundvöllur
búsetuskerðinga er vörn ríkisins gegn því að einstaklingar fái greiðslu á tveimur
stöðum í einu, slík rök eiga við þegar Ijóst er að einstaklingar njóta réttar í fyrra
búsetulandi. Félagsleg aðstoð er réttur sem ekki er greiddur úr landi og eiga því
grunnreglur evrópuréttar um búsetuútreikninga ekki við, og er þar með ekki hægt að
rökstyðja með neinum öðrum rökum en þeinn að spara eigi greiðslur ríkisins, m.ö.o.
verði þessi grein frumvarpsins samþykkt er ríkið farið að spara sér greiðslur á
ómálefnalegum grunni.
d) Slðor
í þessu ákvæði kemur fram að sérstök framfærsluuppbót mun skerðast vegna bóta
samkvæmt lögum um slysatryggingar. Hér á það sama við og sagt hefur verið um c.
lið hér að ofan, ákvæðið felur í sér réttindaskerðingu sem ekki hefur verið sátt um.
Hér er verið að lauma inn ákvæði sem getur haft mikil áhrif á rétt fólks og sá stutti tími
sem gefinn er í meðferð frumvarpsins á þingi getur ekki réttlætt þessa breytingu án
þess að tími sé gefinn til gaumgæfilegrar umræðu um þetta mál.
Starfsfólki ÖBÍ hefur ekki gefist timi til þess að fara yfir áhrifin af þessu ákvæði en þó
er Ijóst að fari þetta ákvæði í gegn er verið að heimila og tryggja lagagrundvöll fyrir
frekari skerðingar.
í Ijósi þessa er algerlega óásættanlegt að þetta ákvæði frumvarpsins verði samþykkt.
Velferðarnefnd er hvött til þess að gera breytingartillögu um að fella þetta ákvæði úr
frumvarpinu.
e) liður
Engar athugasemdir.
ff) llður
Taka út úr ákvæðinu „og lögum slysatryggingar".
Um 2. gr.
Með þeirri reglu, samkvæmt gildandi lögum, að árstekjum lífeyrisþega skuli jafnað
niður á alla mánuði almanaksársins eru lífeyrisþegar ósjaldan í þeirri stöðu að þurfa
að endurgreiða TR háar upphæðir ef þeir hefja störf eða fá aðrar tekjur eftir mitt ár,
sbr. dæmi hérfyrir neðan.
Kona með sjúkraliðamenntun og 75% örorkumat vill reyna að komast aftur út á
vinnumarkaðinn frá 1. jú lí í lægra starfshlutfall. Hún hafði þurft að hætta í fyrra starfi
þarsem það varð henni líkamlega oferfitt. Hún hefur engar aðrar tekjur og færgreidda
60.510 kr. I framfærsluuppbót á mánuði fyrir janúar til maí. E f hún hefur störf 1. jú lí
þarf hún að endurgreiða TR framfærsluuppbótina (363.060 kr.) fyrir utan áhríf
6
ÖBÍ | Sigtúni 42 | 105 Reykjavík | 530 6700 | obi.is 1 obi@obi.is
mailto:obi@obi.is
tekjuskerðingará aðra bótaflokka. Efhún hefur störf seinna á árinu hækkar upphæðin.
Fólk þarfað borga sig inn á atvinnumarkaðinn.
í frumvarpinu er lögð til sú breyting að heimila að telja einungis til tekna lífeyrisþega
þær atvinnutekjur sem aflað er á þeim tíma sem viðkomandi á rétt á greiðslum. Þetta
ákvæði myndi geta leitt til lægri bakreikninga vegna atvinnutekna. Auk þess gæti fólk
haft tjárhagslegan ávinning af því að hefja störf hvenær sem er á árinu. Tillaga þessi
nær einungis til atvinnutekna og mun ekki leiða til lægri endurgreiðslna vegna annarra
tekna s.s. úttektar á séreignasparnaði eða lífeyrissjóðstekna. Tillagan hefði þurft að
ná til allra tekna. Jákvætt er að reikna út frá núverandi og nýrri reglu og beita þeirra
reglu sem leiðirtil hærri greiðslu.
Af framangreindu má sjá að ÖBÍ er ekki sátt við þá útfærslu sem hér er kynnt. Við
hefðum svo sannarlega viljað sjá samráð haft við fatlað fólk um það hvernig þessari
fjárhæð hefði best verið varið. Þá er það ekki til að skapa traust í garð stjórnvalda að
sjá hér laumað inn ákvæðum (sjá c. og d. lið) sem aldrei hafa verið kynnt eða rædd
við hagsmunasamtök fatlaðs fólks, og verða eftir því sem best fæst séð bara til að
þrengja að örorkulífeyrisþegum. Það er von okkar að þessi tilteknu ákvæði verði tekin
út úrfrumvarpinu þannig að þau verð ekki lögfest.
Ekkert um ©klkuir án okkar.
Lokaoirð
Með vinsemd og virðingu
formaður ÖBÍ
7
QBÍ | Sigtúni ^2 | 105 Reykjavik | 530 6700 | obi.is | obi@obi.is
mailto:obi@obi.is