Umsögn um 56. mál á 149. löggjafarþingi
Nefndasvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
13. júní 2019
Efni: Umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um 56. mál á 149. löggjafarþingi
Tillaga til þingsályktunar um starfshóp um útgáfu öruggra opinberra skilríkja
Hagsmunasamtök heimilanna styðja markmið tillögu þessarar í meginatriðum, en benda um leið á að
nú þegar er til ígildi rafrænna skilríkja, Íslykill, sem hefur reynst nokkuð vel til auðkenningar fyrir
ýmsar rafrænar þjónustur, bæði opinberar og aðrar. Þar sem notkun Íslykils hefur náð talsverðri og
vaxandi útbreiðslu án þess að vera lögbundin, leggja samtökin til að við frekari þróun á þessu sviði
verði byggt á þeirri reynslu sem fengist hefur af útfærslu og notkun hans.
Aðeins eitt fyrirtæki í eigu einkaaðila, einkum fjármálafyrirtækja, býður upp á svokölluð rafræn
skilríki á grundvelli laga um rafrænar undirskriftir nr. 28/2001. Við leiðréttingu verðtryggðra
fasteignaveðlána samkvæmt lögum nr. 35/2014 var sett það skilyrði að ákvörðuð leiðrétting yrði
staðfest með slíkum skilríkjum. Enn fremur hefur Íslandsbanki hf. krafist notkunar þeirra til að óska
eftir leiðréttingu vaxta á húsnæðislánum samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 623/2016.
Að mati samtakanna er það með öllu óréttmætt að þvinga neytendur þannig í viðskipti við
einkafyrirtæki í einokunarstöðu svo þeir geti sótt réttindi sín á grundvelli laga. Dæmi eru um að
neytendum sem ekki vilja una slíku hafi reynst erfitt að sækja lögbundin réttindi sín.
Afstaða Hagsmunasamtaka heimilanna til útgáfu persónuskilríkja, hvort sem þau séu áþreifanleg eða
rafræn, er sú að eðli máls samkvæmt sé hún á ábyrgð stjórnvalda og meðal þeirra verkefna sem eigi
alls ekki heima hjá einkageiranum. Samkeppni er mikilvægur drifkraftur á frjálsum markaði og getur
verið neytendum til hagsbóta við slíkar aðstæður, en verkefni hins opinbera lúta öðrum lögmálum.
Skilríki eru ekki neytendavara heldur forsenda þess að hægt sé að nýta borgaraleg réttindi.
Einnig má nefna að 31. maí 2019 birti forsætisráðuneytið tilkynningu um eflingu stafrænnar
þjónustu, þar sem m.a. kom fram að stjórnvöld stefni nú að því að ríkið muni taka að sér útgáfu á
rafrænum skilríkjum. Hagsmunasamtök heimilanna eru almennt fylgjandi þeirri stefnu, en hvetja
jafnframt til þess að vandað verði sérstaklega til verks svo útfærslan geti öðlast nauðsynlegt traust.
Virðingarfyllst,
f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna,
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formadur@heimilin.is Guðmundur Ásgeirsson, erindreki@heimilin.is
o
Hagsmunasamtök heimilanna • Ármúla 5 • 108 Reykjavík • kt. 520209-2120 • heimilin@heimilin.is • www.heimilin.is
http://www.althingi.is/
http://www.heimilin.is/
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=56
https://www.audkenni.is/
https://www.audkenni.is/um-audkenni/fyrirtaekid/
https://www.althingi.is/lagas/149b/2001028.html
https://www.althingi.is/lagas/149b/2014035.html
https://www.haestirettur.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=15544293-3b87-48df-a48f-6e7c84d46859
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2019/05/31/Stafraen-thjonusta-efld-Island-verdi-medal-fremstu-i-heiminum/
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2019/05/31/Stafraen-thjonusta-efld-Island-verdi-medal-fremstu-i-heiminum/
http://www.heimilin.is/
mailto:formadur@heimilin.is
mailto:erindreki@heimilin.is
mailto:heimilin@heimilin.is
http://www.heimilin.is